10.7.2010 | 22:21
Deutschland über alles!
Þjóðverjanir eiga þetta fyllilega skilið, áttu skilið að fara í úrslitaleikinn. Er ótrulega hrifinn af þessu liði. Aginn sem leikmennirnir búa yfir er stórkostlegur og þeir spila allir sem einn. Nánast allt er planað og þeir vita alltaf hvað þeir eiga að gera.
Menn eins og Özil, Müller, Schweinsteiger, Neuer og Mertesacker færðu sig allir upp um klassa á þessu móti og eru komnir í hóp eftirsóttustu manna á markaðnum í dag.
Allir leikmenn þýska liðsins spila heima fyrir og því er þetta um leið stórsigur fyrir þýskudeildina og þetta undirstrikar hverus ótrulega sterk hún er.
Miðað við gengi liða eins og Þýskalands og Spáns sem hafa nánast alla eða alla spilandi í sinu heimalandi þá mætti ætla að enska deildin sé á niðurleið miðað við árangur landsliðanna.
Núna væri ráð að fara sýna þýska boltann aftur á einhverri stöðinni!
Brons til Þýskalands í fjórða sinn eftir 3:2 sigur á Úrúgvæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Sævar Már Gústavsson
Spurt er
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrirsögnin hjá þér fer í mínar persónulegu pirrur. Bendi á þessa síðu á Wikipediu.
Nú um stundir er bara þetta sungið:
Þetta "über alles" á ekkert erindi við okkar samtíma...
(Láttu samt ekki mínar persónulegu pirrur fara í þínar persónulegu pirrur...!)
Sammála þér um ágæti þýska liðsins. Sem samanstendur af "alls konar"; Klose, Aogo, Boateng, Khedira, Özil, Trochowski, Podolski, Cacau, Gómez og öllum hinum! Frábærir fótboltamenn, allir saman!
Og, já! Vill einhver fara að sýna þýska boltann?!?
Ybbar gogg (IP-tala skráð) 10.7.2010 kl. 23:29
Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt. Vissi ekki að þriðja erindið væri aðeins notað í dag.
En þar sem Þýskaland er svo ótrúlega töff land og málið skemmtilegt þá finnst mér þessi setning "Deutschland über alles" alltaf viðeigandi.
En takk fyrir ábendinguna samt sem áður :D
Sævar Már Gústavsson, 10.7.2010 kl. 23:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.