Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Sölvi Tryggvason

Frábær grein hjá honum!! Mæli með að fólk lesi fleiri greinar hjá honum, þær eru margar sjokkerandi en margar láta mann hugsa og trúa því að það sé hægt að yfirvinna þær hindranir sem við stöndum frammi fyrir í dag.

http://www.pressan.is/spjallidmedsolva/LesaSpjallidMedSolva/skurdstofa-rikisins


Aðskilnaður ríkis og kirkju

Hérna fyrir neðan set í tengill á grein sem er mjög góður punktur í umræðuna um aðskilnað ríkis og kirkju.

http://www.deiglan.com/index.php?itemid=13253


Ríkisstjórnin á að segja af sér!

Í öllu þessu máli varðandi að Gylfi hafi logið að þinginu og þjóðinni gleymist einn mikilvægur punktur.

Hverjir eru yfirmenn Gylfa?

Eru það ekki heilög Jóhanna og Steingleymir J?

Mér þykir mun líklegra að Gylfi hafi fengið boð að ofan frá heilögu tvennunni um að halda þessum gögnum leyndum. Þannig hafa vinnubrögð heilögu tvennunar verið síðan þessi stjórn var mynduð, eintómt leynipot.

Þess vegna finnst mér meiri ástæða til þess að ríkisstjórnin segi af sér og heilög Jóhanna boði til kosninga til þess að hægt sé að skipti út liði á Alþingi og hleypa nýja fólkinu með nýjar hugmyndir að.

Vanhæf ríkisstjórn


mbl.is Skora á Gylfa að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Núna er breytinga þörf!

Nýjasti starfsmaður ríkisstjórnarinnar er svo sannarlega mikill happafengur. Skuldar aðeins hálfann milljarð(ef heimildir eru réttar), þessa skuld verður að fella niður vegna þess að fyrirtækið hans er eignalaust. Síðan er maðurinn ráðinn í stórt og mikilvægt starf hjá ríkinu. Ég sé ekki hvernig þetta nýja Ísland með heiðarleika að leiðarljósi sé að virka. Mér sýnist sama bullið vera upp á teningum núna og var fyrir hrun, bara mismunandi hugmyndafræði sem virkar samt sem áður eins. Hræsnin hjá stjórnarflokkunum er yfirgengileg!

Þörfin á nýjum flokki er stórkostleg.

Frjálslyndir Demókratar gætu verið hið nýja afl sem vantar.

http://www.frjalslyndirdemokratar.blog.is/blog/frjalslyndirdemokratar/

http://www.facebook.com/#!/pages/Frjalslyndir-Demokratar/130164107024509?ref=ts


Hvernig?

Er það viturlegt að ríkisstjórn með mjög illa staddan ríkissjóð fari að fjárfesta fyrir marga milljarða? Hvernig ætla þeir að fjármagna þau kaup? Með enn frekari hækkun skatta?

Það sem ég tel vera best í þessu máli er að samningar verði gerðir við Magma sem stytta nýttinagrétt á auðlindinni niður í 20-30 ár. Þann starfshátt tel ég líka vera sniðugan í framtíðinni. Að einkarekin fyrirtæki fá að keppast um nýtingarrét á auðlindinni og haldið verði uppboð á henni með 15-30 ára fresti.

Þjóðinn sjálf á að eiga allar auðlindir sem landið býr yfir. En ég tel annað mál hverjir nýta orkuna og selja. Það þarf bara að tryggja að nýtingarrétturinn festist ekki hjá sama aðilanum með ákveðnum reglum sem mætti setja við útboð á nýtinagaréttinum.

Ríkið á ekki að eiga banka eða önnur fjármálafyrirtæki, fyrirtæki í orkugeira eða sjávarútveg o.fl. Hins vegar þarf ríkið að vera mjög sterkt eftirlitskerfi, mjög sterkt, og góð pottþétt lög um alls konar starsemi og starfshætti innan fjármálakerfisins.

Markmið Frjálslyndra Demókrata er að stuðla auknu réttlæti innan þjóðfélagsins og aukinni velferð.

Frjálslyndir Demókratar eru ennþá óformleg samtök sem leitast eftir því að stofna flokk Frjálslyndra Demókrata.

Endilega kynnið ykkur mál þeirra á blogginu og Facebook.

http://www.frjalslyndirdemokratar.blog.is/blog/frjalslyndirdemokratar/

http://www.facebook.com/#!/pages/Frjalslyndir-Demokratar/130164107024509?ref=ts


mbl.is Ríkið gæti keypt hlutinn í HS orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jájá

Mér þykir hann Steingrímur vera farinn að missa tökin á flokknum sínum. Fólk er að hrannast upp gegn stjórnarsamstarfinu í báðum flokkum en hann ætlar að ríghalda í þau völd sem hann hefur. Hann hefur alltaf talað fyrir umbótum í stjórnmálum og endurnýjun og hvað eina. Finnst hann vera byrjaður að gleyma því hverju hann hefur barist fyrir. Er hann ekki orðinn full þaulsetinn á þingi? Ætti hann ekki að leyfa öðrum að komast að?

Áður en við vitum þá mun gamla flokkakerfið vera margklofið. Þótt að það þurfi kannski ekki kosningar í ár þá held ég að þurfi að gerast innan næstu þriggja ára. Finnst ástandið í þinginu verða orðið það brothætt.

Það þarf algjöra endurnýjun á þinginu. Bæði hvað varðar starfsfólk og vinnubrögð.

Kynnið ykkur hugmyndir að grunn-stefnuskrá Frjálslyndra Demókrata!

http://www.frjalslyndirdemokratar.blog.is/blog/frjalslyndirdemokratar/


mbl.is Samstarfið ekki í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir demókratar/lýðræðissinnar

Vil enn og aftur minna á Facebook síðu Frjálslyndra demókrata/lýðræðissinna. Tengill inn á síðunna er hér neðar á síðunni.

Helstu hugmyndir að stefnumálum Frjálslyndra Demókrata:

- Landið verði eitt kjördæmi

- Aðskilnaður ríkis og kirkju í áföngum

- Klára aðildarviðræður við ESB, ná hagstæðum samningi og þjóðaratkvæði um niðurstöðu

- Afnema ríkisstyrki til stjórnmálaflokka

- Ráðherrar sitji ekki á Alþingi

- Styrking þrískiptingu ríkisvalds

- Samaeining Seðlabanka og Fjármálaeftirlits í sterka og sjálfstæða eftirlitsstofnun

- Koma í veg fyrir frekari skattahækkanir

- Hækka skattleysismörkin

- Sparnaður í útgjöldum ríkisins þar sem við má

- Fækka hálaunafólki á vegum hins opinbera, þ.mt. fækka þingmönnum og ráðherrum og hækka laun lögregluþjóna og annara starfsmanna grunnþjónustu samfélagsins

- Draga úr olíuþörf landsins, metan, vetni og/eða rafmagn verði aðal aflgjafi bíla, nýta innlenda orkugjafa og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Allar hugmyndir að stefnumálum eru opnar fyrir umræðu og verður stefnuskrá ekki ákveðin fyrr en að loknum stofnfundi flokksins ef af honum verður.

Stofnfundur verður haldinn þegar nægjanlega margir hafa lýst yfir áhuga á stofnun flokks þessa.


Lítil hænuskref en samt stór skref

Barráttuþrek mitt elfdist til muna í dag. Núna eru 14 manns að undanskildum mér sjálfum búinn að like-a Facebook síðu Frjálslyndra demókrata. Fjórir bættust við í dag! Þótt að þetta virðast fera algjör hænuskref þá finnst mér persónulega þetta vera risastór skref fram á við. Við erum greinilega að ná til einhverja og þetta á vonandi bara eftir að aukast. Ég lít mjög bjartsaýnn fram á veginn.

http://www.facebook.com/#!/pages/Frjalslyndir-Demokratar/130164107024509?ref=ts


Frjálslyndir Demókratar(lýðveldissinar)

Hef fundið fyrir miklum meðbyr varðandi þetta framboð hjá okkur unga fólkinu. Sérstaklega hjá þeim sem skilgreina sig við miðju og hægra megin við miðju í stjórnmálum.

Hef talað við marga á aldrinum 18-30 ára sem taka mjög vel í þær hugmyndir sem við höfum fram á að færa og geta hugsað sér að taka þátt í að móta þennan flokk.

Er mikið feginn að ungt fólk sé tilbúið að stofna nýtt afl fullt af hugsjónum og raunhæfum markmiðum.

Vona bara og veit að lífsreyndara fólkið sé tilbúið að taka þátt í þessu líka.


Loksins!

Mikið er ég feginn að maðurinn hafi loksins tekið þá ákvörðun sem hann átti að taka strax eftir bæjastjórnarkosningar. Honum var hafnað af þeim skammarlega fáu sem tóku þátt í prófkjörinu og átti aldrei að detta það í hug að taka við starfinu.

Síðan er líka allt annað mál að meirihluta vinstriflokkanna í bænum hefur aðeins c.a. 40% af kosningabærum íbúum bæjarins bak við sig, það er ótrulegt að þeir dirfist kalla sig meirihluta með þetta fylgi. Það á auðvitað að vera "þjóðstjórn" í Hafnarfirði með fagráðnum bæjarstjóra. Það standa aðeins rétt yfir 50% kosningabærra bæjarbúa bak við þessa 11 fulltrúa. Þeir virðast samt ekki geta tekið marg á þessum skilaboðum og það mun vonandi koma duglega í kollinn á þeim í næstu kosningum!


mbl.is Lúðvík hættir í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Sævar Már Gústavsson

Höfundur

Sævar Már Gústavsson
Sævar Már Gústavsson
Fæddur 1991. Bý í Firðinum. Mun útskrifast úr Flensborg jólin 2010. Hef brennandi áhuga á sálfræði, eðlisfræði og pólitík og er yfirlýstur "trúleysingi". Er einn af forsprökkum áhugahóps um stofnun Frjálslyndra demókrata/lýðræðissina á Íslandi.  Og fyrir þá sem vita það ekki þá er Bjartmar Guðlaugsson bestur!

Spurt er

Gætir þú hugsað þér að kjósa nýtt frjálslynt stjórnmálaafl?
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Fréttir frá Amnesty

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.