Færsluflokkur: Bloggar

Sölvi Tryggvason

Frábær grein hjá honum!! Mæli með að fólk lesi fleiri greinar hjá honum, þær eru margar sjokkerandi en margar láta mann hugsa og trúa því að það sé hægt að yfirvinna þær hindranir sem við stöndum frammi fyrir í dag.

http://www.pressan.is/spjallidmedsolva/LesaSpjallidMedSolva/skurdstofa-rikisins


Aðskilnaður ríkis og kirkju

Hérna fyrir neðan set í tengill á grein sem er mjög góður punktur í umræðuna um aðskilnað ríkis og kirkju.

http://www.deiglan.com/index.php?itemid=13253


Núna er breytinga þörf!

Nýjasti starfsmaður ríkisstjórnarinnar er svo sannarlega mikill happafengur. Skuldar aðeins hálfann milljarð(ef heimildir eru réttar), þessa skuld verður að fella niður vegna þess að fyrirtækið hans er eignalaust. Síðan er maðurinn ráðinn í stórt og mikilvægt starf hjá ríkinu. Ég sé ekki hvernig þetta nýja Ísland með heiðarleika að leiðarljósi sé að virka. Mér sýnist sama bullið vera upp á teningum núna og var fyrir hrun, bara mismunandi hugmyndafræði sem virkar samt sem áður eins. Hræsnin hjá stjórnarflokkunum er yfirgengileg!

Þörfin á nýjum flokki er stórkostleg.

Frjálslyndir Demókratar gætu verið hið nýja afl sem vantar.

http://www.frjalslyndirdemokratar.blog.is/blog/frjalslyndirdemokratar/

http://www.facebook.com/#!/pages/Frjalslyndir-Demokratar/130164107024509?ref=ts


Úrsögn!

Ég skrifaði undir plagg í dag.  Hafði mjög gaman af því.  En með því að skrifa undir það þá skrái ég mig úr Þjóðkirkjunni. 

 Eftir margar ára pælingar og umhugsun þá hef ég komist að því að trúin á heilagan anda er ekki fyrir mig og engin önnur "trúarbrögð" og/eða samfélög.

Ég ætla að treysta á það góða í manninum sem og náttúruna sem ég tel líða frá skipulagi til óreiðu án hjálpar einhvers afls sem er æðra en sjálf náttúruöflin sem eru þekkt og/eða óþekkt.

 Hins vegar ætla ég ekki að útiloka neitt og mun hugsa um alla möguleika með gagnrýnni hugsun eins og ég hef ávallt reynt að gera.

...og það var gott.


Frjálslyndir demókratar/lýðræðissinnar

Vil enn og aftur minna á Facebook síðu Frjálslyndra demókrata/lýðræðissinna. Tengill inn á síðunna er hér neðar á síðunni.

Helstu hugmyndir að stefnumálum Frjálslyndra Demókrata:

- Landið verði eitt kjördæmi

- Aðskilnaður ríkis og kirkju í áföngum

- Klára aðildarviðræður við ESB, ná hagstæðum samningi og þjóðaratkvæði um niðurstöðu

- Afnema ríkisstyrki til stjórnmálaflokka

- Ráðherrar sitji ekki á Alþingi

- Styrking þrískiptingu ríkisvalds

- Samaeining Seðlabanka og Fjármálaeftirlits í sterka og sjálfstæða eftirlitsstofnun

- Koma í veg fyrir frekari skattahækkanir

- Hækka skattleysismörkin

- Sparnaður í útgjöldum ríkisins þar sem við má

- Fækka hálaunafólki á vegum hins opinbera, þ.mt. fækka þingmönnum og ráðherrum og hækka laun lögregluþjóna og annara starfsmanna grunnþjónustu samfélagsins

- Draga úr olíuþörf landsins, metan, vetni og/eða rafmagn verði aðal aflgjafi bíla, nýta innlenda orkugjafa og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Allar hugmyndir að stefnumálum eru opnar fyrir umræðu og verður stefnuskrá ekki ákveðin fyrr en að loknum stofnfundi flokksins ef af honum verður.

Stofnfundur verður haldinn þegar nægjanlega margir hafa lýst yfir áhuga á stofnun flokks þessa.


Skammarlegt!!

1,4 % af 167.000 kr? Hefur þetta fólk ekkert vit. Réttlætanlegt væri að launin hækkuðu að minnsta kosti um 50 prósent! Vona svo sannarlega að þeir fái mannsæmandi kjör og í samræmi við álagið og áhættuna sem felst í starfinu!


mbl.is Slökkviliðsmenn mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til skammar!!

Þetta er án efa ömurlegstu laun sem ég hef heyrt um. Erfiðis vinna sem menn þurfa að fórna sér í. Ég er sumarstarfsmaður hjá Hafnarfjarðarbæ og ég fæ 167.000 á mánuði. Ef maður miðar grunnvinnu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við mína vinnu þá ætti ég að fá svona 50.000 á mánuði. Mundi glaður gefa þeim launinn mín!!

Frjálslyndir demókratar ætlar að berjast fyrir bættum launum innan grunnþjónustunar!!

http://www.facebook.com/#!/pages/Frjalslyndir-Demokratar/130164107024509?ref=ts


mbl.is Grunnlaun slökkviliðsmanna til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB

Hef tekið þá ákvörðun, sem mér finnst mjög skynsöm persónulega, að ég vil að aðildarviðræður verði kláraðar svo að ég geti fengið að lesa samningin sem legður yrði fram og eftir þá lesningu taka afstöðu með eða á móti inngöngu í ESB!
mbl.is Útifundur gegn ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæm læknisþjónusta!

Ætla rétt að vona að ríkisstjórnin ætli ekki að fara eftir þessum tillögum og gera enn þrengra í búum landsins en nú þegar er. Mér finnst að stjórnvöld ættu frekar að hugsa að niðurskurði aðallega varðandi sín störf, eins og að fækka þingmönnum og ráðherrum til að minnka fjárlagahallan. Það mætti einnig afnema sjálfstyrki stjórnmálaflokkana í gegnum ríkissjóð(215 milljónir 2003, fann ekki aðrar tölur). Bara þetta gæti verið drjúgur sparnaður á hverju ári, svo tala ég ekki um aðskilnað ríkis og kirkju. Einnig hefur maður heyrt hjá þeim sem þekkja til að í heilbrigðiskerfinu mætti spara þvílíkar fjárhæðir með því að skipuleggja batteríið betur og um leið efla þjónustuna. Það er kominn tími til að stjórnvöld átti sig á því að ekki er hægt að blóðmjólka almenning í landinu meira og um leið láta stóran hluta verslunarinnar lognast út af! Það þarf nýjan hugsanagang og allsherja yfirhalningu á öllu sem tengist ríkinu!

Frjálslyndir demókratar/lýðveldissinnar


mbl.is Eins og að fara til læknis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælin

Vona bara að fólk ætli að ekki að beina mótmælum sínum gegn lögreglumönnum sem mnunu vera til staðar. Því miður þá er það oft þannig að fáir mótmælendur eyðileggja mótmæli með því að beina reiði sinni að lögreglumönnum. Lögreglumenn eru í gífurlega erfiðu og undirborguðu starfi og því ætti frekar að mótmæla því hve kjör þeirra og annara starfsmanna grunnstoða samfélagsins séu léleg!

Ætla ekki að tjá mig um þessi mótmæli sem eru nú að eiga sér stað því ég hef ekki getað gert það upp við mig hvort þau eigi rétt á sér. Hef bæði heyrt að dómur Hæstaréttar hafi ekki sagt neitt um vexti lánanna og hef líka heyrt annað. Til að gera mér upp skoðun á þessu þarf ég að lesa allan dóminn og ætla að kynna mér hann á næstu dögum.


mbl.is Mótmælt á ný við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Sævar Már Gústavsson

Höfundur

Sævar Már Gústavsson
Sævar Már Gústavsson
Fæddur 1991. Bý í Firðinum. Mun útskrifast úr Flensborg jólin 2010. Hef brennandi áhuga á sálfræði, eðlisfræði og pólitík og er yfirlýstur "trúleysingi". Er einn af forsprökkum áhugahóps um stofnun Frjálslyndra demókrata/lýðræðissina á Íslandi.  Og fyrir þá sem vita það ekki þá er Bjartmar Guðlaugsson bestur!

Spurt er

Gætir þú hugsað þér að kjósa nýtt frjálslynt stjórnmálaafl?
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Fréttir frá Amnesty

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband